GO-KART Námskeið

Lærðu að aka eins og meistararnir!
Allt árið í kring heldur GO-KART Brautin Námskeið í GO-KART sem fræðir nemendur um hvernig bílarnir virka, hvernig mótorinn starfar og fyrst og fremst um það sem námskeiðin standa fyrir, öryggi og fræðsla um hvernig maður á að haga sér í umferðinni.
Um námskeiðin
- Námskeið GO-KART Brautarinnar eru 6 skipti í heildina
- Tvö skipti í viku, tvo klukkutíma í senn
- Námskeið GO-KART Brautarinnar einkennist af öryggi, fræðslu, tilfinningu fyrir ökutækjum, reglum og þeim hættum sem kunna að myndast í umferðinni
- Nemendur fá að kynnast og fræðast um hvernig bílarnir virka, hvernig mótorinn starfar o.s.f.v.
- Einnig fá nemendur að fræðast um mikilvægi galla, hjálma og öllum þeim búnaði sem kemur í veg fyrir meiðsli og slys
- Í öllum tímum fá nemendur kennslu hvernig er best að keyra bílana og fá að æfa sig á þeim
- Í námskeiðum fá nemendur að kynnast aksturslínum, að gefa færi, keyra milli keila, fræðast og hafa gaman
- Allar dagsetningar er hægt að skoða hér: Dagsetningar
- Hægt er að skrá sig á námskeið hér: Skráning í GO-KART Námskeið
- Allar nánari upplýsingar eru í síma 771-2221, einnig er hægt að senda póst á gokart[hjá]gokart.is

Allar nánari upplýsingar má finna í síma 771-2221 eða senda póst á gokart[hjá]gokart.is






